Nokia Mini Speaker MD 11 - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins
Fara skal gætilega með tækið, rafhlöðuna og allan aukabúnað. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar

skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna.

Hvorki skal nota tækið á rykugum eða óhreinum stöðum né geyma það þar. Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess

geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu tækisins, skemmt rafhlöðuna og undið eða

brætt plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því og hann

getur skemmt rafrásir.

Ekki skal reyna að opna tækið.

Óleyfilegar breytingar geta skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld og búnað.

Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð tækisins.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.